Veiðivötn opnuðu í gær. Eins og hefur verið síðustu ár, þá eru öll veiðileyfi fyrir sumarið uppseld og full bókað í öll húsin. Það er reyndar svo að yfirleitt eru ekki miklar mannabreytingar á milli ára í Veiðivötnum, hver hópur reynir að halda sínu holli og yfirleitt eru þau á sama tíma, ár hvert. Við slógum á þráðinn til veiðimanna sem eru í opnuninni og heyrðum einnig í Bryndísi í Veiðivötnum.

Fyrsti dagurinn var frekar rólegur hjá veiðimönnum, rólegri en oft áður. Lofthiti var ekki hár í gær og hiti rétt fyrir ofan frostmark í nótt. Áfram er gert ráð fyrir fremur köldu veðri. Vötnin eru því enn köld og nokkur dæmi um snjóskafla á bökkum þeirra. Nánast engin fluga er farin að klekjast út og lífríkið örugglega ca. 10-15 dögum seinna til að taka við sér en á hefðbundu sumri. En þrátt fyrir þetta þá eru að veiðast fínir fiskar og veiðimenn ánægir með að vera komnir aftur í fyrirheitna landið. Við heyrðum af nokkrum vænum urriðum sem komu á land, m.a. í Litlasjó, Hraunvötnum og í Kvíunum.

Við munum áfram fylgjast með veiðinni í Veiðivötnum á næstu dögum.

{gallery}Veidivotn{/gallery}

[email protected]