Það er ljóst að veiðifréttir síðustu daga hafa ýtt ánægjuvog laxveiðinnar sem og væntingavísitölunni upp um mörg stig. jákvæðar laxveiðifréttir virðast vera útum allt og finnst mörgum nóg um. Það er nú bara samt svo, að vel virðist veiðast mjög víða og eftir þungan svartsýnis vetur, þá er ánægjulegt hvernig vertíðin fer af stað. Við ætlum að stikkla á stóru og gefa ykkur smá innsýn inní stöðuna.

 

  • Norðurá – Það er blússandi gangur í Norðurá þessa dagana. Áin er komin í um 160 laxa og nú er það ekki lengur tveggja ára laxinn sem er uppstaðan í aflanum heldur eru smálaxagöngur að skila sér í ána, sem er mikið gleðiefni. Áin er komin með um 16% af afla síðasta árs e
  • Skjálfandafljót – Opnunardagurinn í Skjálfandafljóti var mjög góður. Nítján laxar komu á land, allir þeirra mjög vænir 2ja ára laxar. Spennandi verður að fylgjast með hvort að smálaxinn skili sér fljótlega inní veiðina.
  • Blanda – Eins og menn muna þá opnaði Blanda í Kakói. Þrátt fyrir það voru nokkrir laxar að skila sér úr ánni á hverjum degi. Nú er liturinn farinn að mestu úr ánni og meiri kraftur kominn í veiðina. Á Þriðjudaginn komu 9 laxar úr ánni, þar af fimm á flugu. 64 laxar voru komnir úr ánni í gær.
  • Þverá/Kjarrá/Brennan – Opnunin í Kjarrá var með þeim betri sem menn muna sem þekkja til árinnar. Samtals komu 54 laxar á land á fyrstu 7 vöktum árinnar og veiðimenn misstu mikið af fiski. Samtals eru yfir 100 laxar komnir á land á svæðinu öllu.
  • Hítará – Hítará byrjaði ágætlega en veiði hófst þar á þriðjudaginn. Þó nokkuð af fiski er komin í ána en hann hefur lítið dreift sér ennþá. Fimm fiskar komu á land á fyrstu vaktinni en þeir komu allir á land úr heimahyljunum.
  • Haffjarðará – Haffjarðará byrjaði mjög vel þegar hún opnaði á laugardaginn. Vel veiddist fyrstu vaktirnar og uppistaðan af laxinum var vænn tveggja ára fiskur.
  • Straumarnir – Vel hefur veiðst vel í Straumunum að undanförnu og nú eru rúmlega 30 laxar komnir á land.
  • Flókadalsá – Flókan opnaði í fyrrdag og veiðin þar hefur verið mjög góð og mikið af laxi í ánni. 16 laxar voru komnir þar á land í gærkveldi.

Í dag opnar svo Kjósin, Elliðaárnar,Straumfjarðará og einhverjar fleiri ár. Aðrar ár sem opna í lok vikunnar eru t.d. Miðfjarðará og Grímsá. Fréttir hafa borist af laxagöngum í öllum þessum ám og er því von á líflegum opnunum.

[email protected]