Torfastaðasvæðið í Soginu er á vestur bakka Sogsins á milli Bíldsfelsins að ofanverðu og Álftavatns að neðanverðu. Svæðið er mjög gott bleikjusvæði en einnig veiðist urriði, birtingur og lax á svæðinu.
Vorveiðileyfin fyrir Torfastaði eru nú komin á vefinn. Seldar eru 2 stangir saman í pakka. Verð á hverja stöng er frá kr. 13.000. Leyfilegt er að veiða á flugu á svæðinu og öllum fiski skal sleppt.
Veiðin á svæðinu síðasta vor var frábær – margar flottar bleikjur sem komu á land í april og maí, og í apríl komu all margir birtingar einnig í háfinn.
Hérna má finna leyfin á Torfastaði.
Eilítið síðar í vetur koma svo snemmsumars og sumarleyfin inná vefinn.
Hér má sjá nokkrar fínar bleikjur frá degi í byrjun maí






