Á hverju hausti veiðast birtingar í þyngdinni 16-18 pund en óalgengt að stærri fiskar komi á land, þó slíkar sögur heyrist þó stundum. Í fyrrakvöld kom þó einn slíkur á land í efri hluta Hörgsár, í gljúfrunum. Sjóbirtingshængur sem mældist 98 cm og 19,8 pund. Veiðimaðurinn, Sigurður Baldursson í Múlakoti, er einn fárra sem stunda þetta svæði. Þannig hefur það verið undanfarin ár. Hængurinn kokgleypti svartan Toby spún.
Sigurður var búinn sjá fiskinn og reyna að egna fyrir hann í drjúgan tíma áður hann tók spúninn. Baráttan tók um 1 1/2 klst við mjög erfiðar aðstæður enda klappir og mikið stórgrýti þar sem baráttan fór fram. Mikil hætta var á að hvassar brúnir í botninum myndu klippa í sundur girnið og því þurfti Sigurður að vaða mikið og klöngrast til að koma í veg fyrir það. Við erfiðar aðstæður tókst að landa sjóbirtingshængnum sem þrátt fyrir það hversu vel hann var tekinn, háði hetjulega baráttu.
Sigurður hefur kíkt í gljúfrin í nokkur skipti á undanförnum vikum. Um daginn sá hann fisk á svæðinu sem var svo stór að sá sem hann veiddi hefði virkað lítill við hlið hans. En það eru fleiri að setja í stóra birtinga á þessu svæði þessa dagana því Ragnar í Hörgslandi sem sér um Vatnamótin, sagði frá því að hann hefði sett í risa birting í fyrradag. Sá var vart undir 20 pundum. Ragnar togaðist heillengi á við hann og hljóp á eftir honum niður á bakka Skaftár en þar náði hann að slíta sig lausan.
Rúmir 20 dagar eru eftir af sjóbirtingsvertíðinni og því nægur tími fyrir veiðimenn til að skella sér í veiði. Hér inni á veiða.is er leyfi í Eldvatni í Meðallandi og Laxá og Brúará. Kíkið á lausa daga.
