Við höfum fylgst vel með útboðsmálum á undanförnum mánuðum og vikum. Útboðin hafa verið mörg á þessu ári og enn er þeim að fjölga, nú síðast nú fyrir helgi þegar Laugardalsá bættist í hópinn. Yfirleitt líður ekki langur tími frá því að tilboð eru opnuð þar til veiðifélögin eru búin að taka ákvörðun við hver skal semja. Nú standa hinsvegar enn þá 2 útboð ókláruð, þrátt fyrir að nokkrar vikur séu frá því að tilboð í þær voru opnuð. Þetta eru Flekkudalsá og Tungufljót í Skaftafellssýslu.
Tilboð í Flekkudalsá voru opnuð í byrjun júlí en hæsta tilboðið, að því er fyrstu fréttir hermdu, barst frá félagi í eigu Einars Lúðvíkssonar. Málið var þó ekki svo einfalt þar sem tilboðin sem bárust voru ólík að ýmsu leyti, alveg frá áætlunum um nýtingu á veiðihúsi til þess hvaða agn yrði notað í ánni. Enn er ekki búið að semja við nýjann leigutaka en það verður væntanlega gert á allra næstu dögum.
Tilboð í Tungufljót í Vestur Skaftafellssýslu voru opnuð í lok ágúst. Félag í eigu Einars Lúðvíkssonar var einnig með hæsta tilboðið í því útboði, um 1.200 þús kr. hærra en næst hæsta tilboðið. Þó svo að veiðifélagið muni byrja á því að ræða við Einar, þá hafa þær viðræður ekki enn átt sér stað. Líklegt er þó að til tíðinda dragi í næstu viku.
Við munum áfram fylgjast náið með þeim útboðum sem eru í gangi. Vænta má að í haust eða snemma í vetur muni koma í ljós hver verður nýr leigutaki að Víðidalsá, Brynjudalsá og Laugardalsá. Svo herma fréttir að ein af stærri laxveiðiám landsins sé að skipta um rekstraraðili.