Stóri straumurinn þessi dagana virðist vera að skila sterkari göngum uppí árnar. Við heyrðum í aðilum uppí Borgarfirði en einnig í Ytri Rangá sem höfðu þá sömu sögu að segja. Veiða.is kíkti við á neðri svæðum Ytri Rangár í gærkveldi og þar sáum við mikið af fiski vera að ganga uppí ána, m.a. töluvert af 1 árs fiski. Veiðin þar hefur verið að taka við sér síðustu daga og nú eru fiskar einnig farnir að veiðast á flestum stöðum á efsta svæði árinnar. 

Það eru nokkrir dagar lausir á næstunni inni á veiða.is. Meðal annars eru örfáar stakar stangir lausar í Ytri Rangá fram til 20. júlí. Einnig erum við með holl í Norðurá II 24-27. júlí. Stakir dagar í Skógá í lok júlí. Stakir dagar í Gufuá um næstu mánaðamót og svo erum við einnig að fá daga í Norðlingafljóti sem vegna sérstakra aðstæðna seljast á mjög góðu verði. Sendið póst á [email protected]

[email protected]