Veiðin í Gufuá hefur farið fremur rólega af stað þetta sumarið, líkt og annar staðar á vesturlandi. Nú í gærkveldi höfðu 23 laxar verið færðir til bókar en á sama tíma í fyrra voru 53 laxar komnir í bókina. Að auki við laxana 23 hafa rúmlega 20 urriðar á bilinu 40-50 cm komið á land. Ekki hefur vantað vatn í Gufuá í sumar, enda stefnir í að þetta sumar fari í veðurmetabækur fyrir rigningu. Þennan lax hérna til hliðar veiddi Gylfi Jón Gylfason í gær en þessi 4 punda silfraði fiskur lét Gylfa hafa fyrir hlutunum því hann tók strauið niður ána og stoppaði ekki fyrr en 400m fyrir neðan tökustaðinn, þar sem Gylfi landaði honum. Þessi fiskur er einn af fjórum löxum sem komu á land í gær en að auki missti Gylfi og félagar, aðra 5 laxa. Gylfi sagði að mikið líf hefði verið í ánni, svo vonandi er stórstreymið nú um helgina að skila góðum göngum í ána.
Það eru lausar stangir í Gufuá nú í ágúst og september. Verðið er frá kr. 10-20.000 fyrir stangardaginn. Hérna má sjá hvað er laust í Gufuá.