Hafn H Hauksson og félagar kíktu í Svartá í Skagafirði um helgina. Var það fyrsta ferð þeirra í Svartá. Aðstæður voru ekki þær auðveldustu, fremur kalt í veðri og væta hluta af tímanum. Við fengum skýrslu frá Hrafni eftir helgina en þeir félagar gerðu mjög flotta veiði.

„Þetta endaði i 34 fiskum. 10 af þeim 60+ og bara 3 undir 50. …….. það var fiskur a flestum stöðum fra brúnni ofan við Mælifellsá og upp i efsta stað. Við löbbuðum þetta allt svo yfirferðin var mikil. Stærstu “tveir” voru 69 cm. Sami fiskurinn veiddur með dags millibili. ……. Svæðið við Sölvanes var drjugt en lika gljúfrin og svæðið i kringum Starrastaði.“

Frábærar fréttir frá Svartá en áin getur verið strembin en eins og sést á lýsingu þeirra félaga þá geymir áin stóra fiska – líklega fleiri stóra fiska en má finna í flestum urriðaám á Íslandi.

Hérna má finna lausa daga í Svartá í sumar – verð á stangardag er kr. 13.000