Sett var í fyrstu laxa sumarins í Soginu, sem við höfum heyrt af, núna síðdegis.  Eysteinn Orri Gunnarsson kíkti í Bíldsfellið nú síðdegis og var búinn að setja í 2 laxa þegar við heyrðum í honum nú í kvöld.

Fyrsti laxinn kom á milli garða, ca. 65 cm hængur – Eysteinn var einn á svæðinu og tók þessa mynd sem hér fylgir með. Eysteinn skellti sér aftur útá garðana og setti í einn stórann. Þegar hann var buinn að koma honum nánast í flæðarmálið, þá sleit hann úr honum. Eysteinn varð var við fleiri fiska.

Enginn lax er ennþá kominn á land í Alviðrunni, en þó hafa veiðimenn séð nokkra á Öldunni og þar um kring.

Það eru lausir dagar á næstunni í Bíldsfelli, Alviðru og Syðri Brú.