Veiðitímabilið er komið vel af stað og vorið hefur látið sjá sig. Veiðin á Þingvöllum er hægt og rólega að taka við sér og nú er hægt að ná sér í dag á einu besta veiðisvæði Þingvallavatns, hér á vefnum.

Svörtuklettar, er nú komið aftur í sölu hér að vefnum. Svæðið er þekkt fyrir miklar aflahrotur og eru mýmörg dæmi um að fleiri en einn og fleiri en 2 veiðimenn hafi sett í stórurriða á sömu mínútunni, þegar torfurnar koma í kastfæri.

Seldar eru 4 stangir á dag á svæðið við Svörtukletta og eru þær seldar saman í pakka. Stangardagurinn á kr. 11.250.  Hérna má finna lausa daga.

Á næstu dögum kemur svo annað Þingvallavatnssvæði í sölu – fylgist með.