Veiðin hófst í Hólaá við Útey 1. apríl. Veiðin hefur verið fín frá opnun og hefur vatnsmagn í ánni verið fínt, enda heldur er það almennt nokkuð stöðugt. Uppistaða veiðinnar fyrstu 4 dagana er urriði. Stærð hans er frá ca. 1 pundi og í 5-6 pund.
Veiðimenn sem voru við ána í gær, gerðu góða veiði. Komu líklega í kringum 20 urriðar á land og var sá stærsti 60 cm langur, eða rétt um 5 pundin. Bleikjan er ekki farin að koma niður í ána. Einingis hafa 2 eða 3 bleikjur komið á land nú í apríl.
Leyfilegt er að veiða á flugu, spún og maðk í Hólaá. Nú í upphafi tímabils hafa flestir fiskar komið á spún en nokkrir einnig á flugu.
Við hvetjum alla til að sleppa urriðum nú í upphafi vertíðar, enda eru þeir að koma undan erfiðum vetri og eiga eftir bæta á sig forða. Betra er að bíða eftir sumrinu og taka nokkrar bleikjur á pönnuna – enda er Hólaá ein besta bleikjuá suðurlands.
Meðfylgjandi er mynd af stærsta urriðanum sem kom á land í Hólaá í gær.
