Veiða.is hefur nú tekið í sölu Torfastaðasvæðið í Soginu. Seldar eru saman 2 stangir í pakka, heilir dagar. Hefðbundin pása.

Hérna eru lausir dagar í sumar

 

Torfastaða svæðið í Soginu er svæði sem ekki hefur mikið farið fyrir í gegnum árin, þó menn hafi vitað af mjög góðri veiði, bæði á silungi og laxi. Torfastaðir eru á milli Alviðrusvæðisins og Bíldfellsins, á vesturbakka Sogsins. Svæðið nær frá ósum Tunguár, og niður að Álftavatni.

Veitt er á 2 stangir á svæðinu, sem er rétt um 1,5 km langt. Gott aðgengi er að flestum stöðum en einnig auðvelt að “skanna” það á tveimur jafn fljótum.

Ekkert veiðihús fylgir með en veiðikofi er á svæðinu þar sem hægt er að setjast niður í pásunni – númer að lyklaboxi er sent þegar bókað er. Ekkert vatn er í húsinu, og ekkert salerni. Hægt er að renna uppá Torfastaði 1, til að nýta aðstöðuna þar.

Mikilvægt er að skrá allan afla í bækur sem eru í kofanum.

Fluga er eina leyfilega agnið á svæðinu, eins og allstaðar í Soginu sjálfu. Öllum laxi skal sleppt aftur og sama gildir um bleikjuna.

Níu merktir veiðistaðir eru á svæðinu. Einhendur duga ágætlega til að veiða þessa staði, en þó geta tvíhendur komið að góðum notum þar sem laxinn getur legið utarlega á stöðunum.
Bleikjuveiði á Torfastaðasvæðinu er oft mikil og góð bleikjurnar geta verið mjög vænar, alveg eins og annarstaðar í Soginu