Veiðin er farinn af stað í Soginu og hafa veiðimenn verið að fá og setja í laxa víða. Fyrstu laxarnir komu á land á Syðri Brú í síðustu viku og um helgina komu laxar á land í Ásgarðinum m.a.

Veiðimenn á Alviðru svæðinu sá töluvert af laxi um helgin en náðu engum á land. Settu í 5 laxa og misstu þá alla, þar á meðal 2 þeirra við harða land, í löndun.  En það er ekki bara lax á Alviðrusvæðinu og í Soginu, heldur er mikið af vænni bleikju. Þeir sem voru við veiðar um helgina lönduðu nokkrum mjög fínum fiskum, stærstu bleikjurnar um 60 cm langar.

Alviðrusvæðið er mikið selt í júlí en töluvert laust í ágúst. Hérna má sjá lausa daga.

Mynd frá því um helgina.