Sogið er þekkt fyrir sínar stóru bleikjur – sem betur fer er núna óheimilt að taka þær með í soðið, þegar flugur veiðimanna freista þeirra um of. Torfastaðir, á vesturbakka Sogsins, er eitt af betri bleikjusvæðum Sogsins. Það afmarkast af Bíldsfelli að ofanverðu og Álftavatni að neðanverðu. Þegar hlýnar, og lífríkið tekur við sér, þá renna bleikjurnar sér uppúr Álftavatni til að „nærast“.
Síðustu daga hefur hitastigið á suðurlandi verið á uppleið og hitinn farið yfir °10 gráður yfir daginn. Það má vel merkja í veiðinni – bleikjan er komin á stjá í meira mæli og veiðin á eftir að verða betri og meiri eftir því sem líður á maí mánuð.
Við heyrðum í Ólafi Hilmari Foss, sem var við veiðar á Torfastöðum við annan mann í dag – við heyrðum í honum um miðjan dag. Þá voru þeir félagar komnir með 8 fínar bleikjur, 4 af þeim mjög vænar. Spennandi verður að sjá hvernir þróunin verður næstu daga.
Hér má finna lausa daga á Torfastöðum í maí.
Meðfylgjandi eru nokkra myndir frá deginum.
uppfært í lok dags: 18 bleikjur var loka niðurstaðan eftir daginn.


