Nú eru veiðileyfin á Torfastaðasvæðið í Soginu komin á vefinn. Við hófum sölu inná svæðið um síðasta sumar. Viðtökur voru mjög góðar enda svæðið fallegt með góðu aðgengi og oft á tíðum, mjög góðri veiði. Núna má bæði finna vor- og snemmsumars veiðidaga og daga á laxtímanum. Seldar eru 2 stangir saman í pakka inná Torfastaðasvæðið.

Vor og snemmsumarsveiðin: Stóran hluta vorsins, þá er Torfastaðasvæðið veitt í róteringu með Bíldsfellssvæðinu. Seldar eru 4 stangir saman í pakka á þeim tíma, hver stöng á kr. 10.000. Veiða má þá Stóran hluta Bíldsfellsins og allt Torfastaðasvæðið. Hérna má finna lausa daga á þeim tíma sem Bíldsfellið og Torfastaðsvæðið eru veidd saman. Hérna má finna staka daga í vorveiðina á Torfastöðum. – á þeim tíma er stangardagurinn á kr. 9.400 kr

Laxatíminn: Laxveiðitíminn hefst 20. júní og stendur fram undir lok September. Seldar eru 2 stangir saman í heilan dag. Eingöngu er veitt á flugu á Torfastaðasvæðinu. Verð á hverja stöng á dag er frá kr. 9.900 – 12.000. Hérna má sjá lausa daga

 

Um Torfastaði

Tímabilið hefst 1. apríl. Fram til 10 júní, þá eru Torfastaðir veiddir með Bíldsfellssvæðinu í Róteringu. Stakir dagar eru seldir sér.

Veiðidaga á Torfastaði, frá 20. júní, má finna undir laxveiðileyfi hér á vefnum.

Torfastaða svæðið í Soginu er svæði sem ekki hefur mikið farið fyrir í gegnum árin, þó menn hafi vitað af mjög góðri veiði, bæði á silungi og laxi. Torfastaðir eru á milli Alviðrusvæðisins og Bíldfellsins, á vesturbakka Sogsins. Svæðið nær frá ósum Tunguár, og niður að Álftavatni.

Veitt er á 2 stangir á svæðinu, sem er rétt um 1,5 km langt. Gott aðgengi er að flestum stöðum en einnig auðvelt að “skanna” það á tveimur jafn fljótum.

Ekkert veiðihús fylgir með en veiðikofi er á svæðinu þar sem hægt er að setjast niður í pásunni – númer að lyklaboxi er sent þegar bókað er. Ekkert vatn er í húsinu, og ekkert salerni. Hægt er að renna uppá Torfastaði 1, til að nýta aðstöðuna þar.

Mikilvægt er að skrá allan afla í bækur sem eru í kofanum.

Fluga er eina leyfilega agnið á svæðinu, eins og allstaðar í Soginu sjálfu. Öllum laxi skal sleppt aftur og sama gildir um bleikjuna.

Níu merktir veiðistaðir eru á svæðinu. Einhendur duga ágætlega til að veiða þessa staði, en þó geta tvíhendur komið að góðum notum.

Vorveiðin og snemmsumarsveiðin er oft mjög góð á Torfastaðasvæðinu. Bleikjan er ráðandi á þeim tíma, en einnig veiðast urriðar og sjóbirtingar fyrst á vorin.

Bleikjuveiði á Torfastaðasvæðinu er oft mikil og góð bleikjurnar geta verið mjög vænar, alveg eins og annarstaðar í Soginu