Enn eitt útboðið hefur litið dagsins ljós. Nú hefur Skúli á Syðri Steinsmýri auglýst veiðisvæði Steinsmýrarvatna, sem tilheyra Syðri Steinsmýri, til leigu. Útboðið nær til árana 2014-2016. Svæðið er veitt með 4 stöngum og er veiðitíminn frá 1. apríl til 10. október. Leyfilegt agn er fluga og spúnn en í vorveiðinni hefur eingöngu verið leyfilegt að nota flugu. Veiðihús fylgir svæðinu og er það 2ja herbergja með svefnlofti.
Síðustu ár þá hefur veiðin á svæðinu verið á bilinu 800 – 1.100 fiskar á ári. Á svæðinu veiðist bleikja, sjóbirtingur og urriði. Í haust hefur veiðin verið fín og hafa hollin verið með 10 – 30 fiska. Lokahollið í haust var með 25 fiska og voru megnið af þeim flottir, nýgengnir birtingar.
Skúli á Syðri Steinsmýri hefur séð um sölu leyfa á svæðinu sjálfur undanfarin ár en vegna anna, þá ákvað hann að bjóða svæðið út að þessu sinni. Hægt er að nálgast upplýsingar á www.steinsmyrarvotn.is