Síðustu veiðiárnar loka nú um helgina. Þetta veiðisumar er búið að vera mjög gott að flestu leyti, þó svo að sjóbirtingsveiðin í haust hafi víða valdið smá vonbrigðum. Nú leggjast íslenskir veiðimenn í dvala í nokkrar vikur á meðan leigutakar og veiðileyfasalar fara á fullt í að undirbúa næsta sumar. Enn eru nokkrar veiðiár í útboði og óljóst hvenær nýr leigutaki verður skráður á þær. Fyrir mánaðamót rennur út frestur til að skila inn tilboðum í 3 laxveiðiár, sjá að neðan. Í dag mun svo nýr leigutaki „formlega“ taka við Víðidalsá og Fitjá.
Það hefur verið rætt um að hinn venjulegi íslenski veiðimaður ráðstafi flestum veiðifrídögum sínum á tímabilinu nóvember til mars á hverjum vetri. Þá ákveður hann hvenær og hvar hann ætlar að veiða á næsta sumri. Enn liggur ekki fyrir hvor verð veiðileyfa breytist mikið næsta sumar en þó má leiða líkur að því að lítið verði um miklar verðlækkanir. Verðbreytingar í þeim útboðum sem við höfum séð hingað til hafa verið frá ca. 10% lækkun leiguverðs uppí ca. 20% hækkun. Nú eftir nokkra daga rennur út frestur til að skila inn tilboðum í 3 veiðiár og heyrst hefur að fleiri ár gætu verið á leið í útboð.
Mýrarkvísl – Frestur til að skila inn tilboðum rennur út þann 25. október. Veitt er með 3 stöngum í Mýrarkvísl og eingöngu er veitt á flugu. Öllum laxi skal sleppt aftur í ána aftur. Áin var friðuð í sumar. Útboðstímabilið er 3 ár.
Laxá á Refasveit – Frestur til að skila inn tilboðum í Laxá rennur út þann 26. október. Veitt er með 3 stöngum í ánni og leyfilegt hefur verið að nota maðk og flugu. Metveiði var í Laxá á Refasveit í sumar. Útboðstímabilið er 3 ár.
Laugardalsá – Frestur til að skila inn tilboðum rennur út þann 30. október. Veitt er með 2-3 stöngum í Laugardalsá og leyfilegt agn hefur verið maðkur og fluga. Meðalveiði í ánni síðustu ár hefur verið um 420 laxar. Útboðið nær eingöngu til næsta sumars. Þess má geta að í útboðsgögnum var rangt heimilsfang gefið upp þangað sem skila á tilboðum. Það rétta er: Garðar Smári Vestfjörð. Tilboð v/Veiðifélags Laugardalsár. Norðurbrú 6. 210 Garðabær.