Hér inni á veiða.is getur þú nálgast veiðileyfi í Minnivallalæk. En eins og margir vita þá á Minnivallalækur fáa sína líka í heiminum. Kristaltært og frjósamt lindarvatnið veitir umgjörð utan um einhver allra bestu búsvæði urriða sem fyrirfinnast á Íslandi og sennilega víðar um heim. Veitt er á 4 stangir í Minnivallalæk og eingöngu er veitt á flugu.
Minnivallalækur er flott veiðisvæði til að sækja heim allt veiðitímabilið. Vorið er oft frábær tími. Hér er hægt að lesa umfjöllun inná V&V um vorveiði í Minnivallalæk.
Með hverju bókuðu holli hér inni á veiða.is, fylgir þetta flotta Minnivallalækjarflugubox. Sendið fyrirspurn á [email protected] til að fá nánari upplýsingar.