Já, þetta var frekar erfið veiðivertíð að ýmsu leyti. Það veiddist vel í allt sumar og á sama tíma var hundleiðinlegt veður, örfáir þurrir dagar á suð-vesturhorni landsins. Það getur nefnilega verið helv. erfitt að vera alvöru veiðimaður, það vitum við hjá veiða.is. Þess vegna viljum við aðstoða þig við að komast í gott frí áður en næsta vertíð hefst. Við viljum að þú skellir þér til Thailands eftir áramótin og náir þér í smá sól fyrir vorið.

Ferðin.is og veiða.is hafa gert með sér samkomulag um að áskrifendur að fréttabréfi veiða.is fá afslátt af ævintýraferð Ferðarinnar til Thailands sem farin er 7. Janúar. – Um er að ræða 3ja vikna ferð með íslenskri farastjórn sem hefur þemað; „Náttúra – Saga – Upplifun – Afslöppun„. Eftir að komið er til Thailands verður dvalið í þrjá daga í Bangkok en síðan tekur við níu daga ferð norður í land. Ferðin endar síðan á paradísareyjunni Koh Chang sem er rétt við landmærin að Kambódíu. Hér er hægt að fá nánari upplýsingar um ferðaáætlunina.

{gallery}thai{/gallery}

Munið að skrá ykkur að póstlista veiða.is hér til hliðar.

[email protected]