Um helgina voru tilboð opnuð í útboði á veiðirétti Laxá á Refasveit fyrir árin 2014, 2015 og 2016. Metveiði var í ánni í sumar þegar 475 laxar komu á land. Veitt er með 2-3 stöngum í Refasveitinni og leyfilegt agn er fluga og maðkur. Útboðið tókst vel en alls bárust 8 tilboð í ána. Hæstu tilboðin voru á bilinu 7-7,5 m.kr. og voru sex tilboðanna á því bili. Núverandi leigutaki er einn þeirra sem bauð á fyrrnefndu verðbili. Fyrir stjórn veiðifélagsins liggur að taka afstöðu til þessara tilboða sem sum hver fólu í sér smá breytingar á núverandi veiðifyrirkomulagi.
Hér er hægt að lesa nánar um Laxá á Refasveit en síðustu 2 sumur hefur verið hægt að kaupa veiðileyfi í Laxá hér á veiða.is.