Eins og veiðimenn muna þá var veðráttan víða erfið hér á landi í sumar. Fyrir norðan og austan þá voraði seint en þegar sumarið kom, þá kom það með hvelli. Þetta leiddi til þess að margar ár voru óveiðandi langt fram í júní og jafnvel fram í júlí, vegna leysinga. Eyjafjarðará er ein þessara áa sem „lentu“ illa í því. Inná Facebooksíðu árinnar má lesa eftirfarandi pistil um sumarið:

„Nú er veiði lokið í Eyjafjarðará þetta tímabilið. Það er óhætt að segja að þetta hafi verið nokkuð erfitt season. Áin var að mestu óveiðanleg allann júlí mánuð vegna leysinga enda mikill snjór í fjöllum eftir harðan og langan vetur. Fjórða svæði var því nánast ekkert inni í allt sumar enda júlí yfirleitt besti tíminn á því svæði. Fimmta svæði kom ekki vel undan vetri og margir staðir hreinlega ónýtir og nokkuð ljóst að við sem sitjum í stjórn veiðifélagsins þurfum að hefja vinnu við að endurheimta þessa staði sem eru orðnir fullir af möl. Ljósið í svartnættinu voru fallegar „kusur“ sem þó veiddust á fimmta svæði og voru þær all nokkurar. Eins var sjóbirtingsveiðin á svæðum I II og III framar vonum og margir mjög fallegir fiskar dregnir á land. Tveir veiðimenn voru þó staðnir að verki á þessum svæðum með ólöglegt agn og var þeim umsvifalaust gert að hætta veiðum og munu þeir ekki eiga greiðan aðgang að veiðileyfum næstu misserin.“

Nú er bara að horfa bjartsýnum augum til næsta sumars og vona að náttúran gefi okkar fleiri góða daga við Eyjafjarðará, en gáfust nú í sumar.

[email protected]