Þann 30. september voru tilboð opnuð í útboði Víðidalsár og Fitjár. Alls bárust sjö tilboð í árnar. Hæsta tilboðið kom frá óstofnuðu félagi sem Jóhann Rafnsson var talsmaður fyrir. Tilboðið hljóðaði uppá tæpar 66 m.kr. á ári. Félagsfundur veiðifélagsins var haldinn í gær en á honum var samþykkt einróma að ganga til samninga við Jóhann og hans viðskiptafélaga. Félagið sem Jóhann stofnaði ber heitið Laxabakki ehf. Leigutíminn er til næstu 5 ára.