Uppfært kl. 14:00 25 laxar á fyrstu vaktinni i sumar.
Veiðin hófst í Ytri Rangá í dag, 26. júní. Strekkings austan átt var við ána þegar veiðin hófst kl. 7 í morgun. Þegar veiða.is leit við, við veiðistaðinn Djúpós kl. 8:20 höfðu veiðimenn náð 4 löxum þá þegar. tveir þeirra voru um 80 cm langir og hinir 2 voru smálaxar. Veit þessi flotta byrjun á gott og virðist lax vera að skríða upp ána þessa stundina. Við munum svo birt frekari veiðitölur frá ánni, síðar í dag.
Þess má geta að það eru lausar stangir í Ytri á næstunni – sjá hér.
info at veida.is