Nú eru aðeins 3 dagar í að veiði hefjist í Ytri Rangá og því eðlilegt að spyrja hvort laxinn sé ekki kominn uppí ána. Því er auðvelt að svara því veiða.is heyrði nú rétt áðan í Jóhannesi Hinrikssyni, staðarhaldara við Ytri Rangá þar sem hann var staddur við Djúpósinn, einn besta veiðistað árinnar. Rétt áður en við náðum í Jóhannes, horfði hann á nokkra laxa renna sér meðfram bakkanum og uppúr hylnum, á leið ofar í ána. Veiðimenn sem opna ána þann 26. júní eiga því vonandi skemmtilegan dag fyrir höndum.

Fyrir þá sem eiga eftir að tryggja sér dag eða daga í Ytri, þá eru lausar stangir í lok mánaðarins og einnig fljótlega eftir mánaðamótin. Hér má sjá verð og lausa daga.

Þess má má geta að fyrrnefndur veiðistaður, Djúpós, skilaði einn og sér samtals 1.156 löxum sumarið 2013.

[email protected]