Eins og við greindum frá um daginn þá hafa fyrstu veiðidagar í Veiðivötnum verið svolítið erfiðir þó svo að all nokkrir vænir fiskar hafi veiðst. Fremur kalt hefur verið í veðri og lífríkið ekki komið af stað svo nokkru nemur, miðað við árstíma. Atli Bergmann var við veiðar fyrstu daga vertíðarinnar í Veiðivötnum nú, eins og hann hefur verið mörg undanfarin ár. Atli sagði að þetta væri lang rólegasta opnunin sem menn muna eftir. Hann sjálfur var „ekki með nema 6 fiska“ sem er það lang minnsta sem hann hefur verið með nokkurn tíman.
Þessir fiskar voru reyndar flestir all vænir og allir fengir á flugu. Að auki missti hann nokkra góða. Einn eftirminnilegasti fiskurinn í þessum túr hjá Atla var þessu 2,3 kg. bleikja sem hann fékk í Snjóölduvatni. Gríðarlega flottur fiskur. Þó svo að flestir sem fara í Veiðivötn séu að leita í stóra urriðann, þá eru nokkur bleikjuvötn sem gefa svona stóra fiska í bland.