Veiðin er hafin í Laugardalsá við Ísafjarðardjúp. Veitt er með 2 stöngum á þessum tíma og leyfilegt agn er fluga. Veiðimenn sem opnuðu ána í gær hafa sett í fjölmarga laxa og landað nokkrum. Þeir segja að mikið sé af laxi í ánni mv árstíma og er hann vel dreifður um nánast alla á. Laugardalsá er ein albesta laxveiðiá landins, ef litið er á fjölda laxa pr stöng. Gott „self catering“ veiðihús er við ána. Á meðfylgjandi mynd er Guðmundur Atli, veiðileiðsögumaður og leigutaki, með lax sem veiddist í morgun í Laugardalsá.

Hérna má finna lausa daga í Laugardalsá.