Nú eru veiðileyfi í Mýrarkvísl komin á veiða.is – Mýrarkvísl er ein af mörgum hliðarám Laxár í Aðaldal. Eins og Laxá í Aðaldal er Mýrarkvísl þekkt fyrir góða meðalþyngd og undurfagurt umhverfi. Mýrarkvísl rennur út í Laxá í Aðaldal um fjórum kílómetrum frá ós Laxár. Þrátt fyrir að vera hliðará Laxár þá er ekki hægt að segja að árnar séu líkar. Mýrarkvísl er frekar nett veiðiá sem þarf að fara nokkuð varlega að til þess að ná góðum árangri. Mýrarkvísl er rúmlega 31 kílómetra löng og á upptök sín í Langavatni og ólíkt flestum íslenskum veiðiám þá er lítið um miklar fyrirstöður fyrir laxinn fyrr en við Reykjafoss en í honum eru tveir miklir laxastigar. 4 stangir veiða að hámarki í Mýrarkvísl á hverjum degi og leyfilegt agn er fluga.
Mýrarkvísl er ekki bara stórgóð laxveiðiá, heldur einnig frábær urriðaá. Í júní og fram í júlí einbeit veiðimenn sér gjarnan að urriðanum, en þegar kemur inní júlí þá hefst laxveiðitímabilið formlega.
Veturinn 2016-17 var nýtt veiðihús byggt við Mýrarkvísl og er það með 4 2ja manna herbergjum. Innifalið í verði veiðileyfa er gisting með uppábúnum rúmum í nýja veiðihúsinu.
Eins og áður kemur fram veiða 4 stangir í Mýrarkvísl dag hvern. Hægt er að bóka 2 eða allar 4 stangir í hverju holli.