Veiðileyfi á ósasvæði Laxár á Ásum hafa verið í boði hér á veiða.is síðustu 5 veiðitímabil – nú eru leyfin fyrir sumarið 2018 komin á vefinn. Veitt er 2 stangir á ósasvæðinu. Annars vegar er um að ræða veiði í Húnavatni og hins vegar í Hólmakvísl, á sem rennur úr Húnavatni og út í sjó. Bæði Vatnsdalsá og Laxá á Ásum renna í Húnavatn og síðan sameiginlega til sjávar í Hólmakvísl. Mikið af fiski gengur í gegnum svæðið og er á svæðinu í maí og júní. Um er að ræða fallskipta veiði og því veiða menn stundum seint á kvöldin og jafnvel inní nóttina, ef þannig stendur á sjávarföllum. Á svæðinu veiðist aðallega bleikja, birtingur og lax. Hérna má finna leyfin á ósasvæðið.