Loksins er 1. apríl runninn upp, dagurinn sem flestir veiðimenn hafa verið að bíða eftir – Veiðitímabilið 2020 er hafið. Vetur konungur er ekki alveg með á nótunum – við erum vön því að á þessum tíma árs að amk sjá glitta í vorið en veðrið í dag og næstu daga verður heldur kalsalegt. Í dag verður hiti víða, við eða undir frostmarki og vindur á suðurlandi getur slegið yfir 20 m/s – aðeins skárra verður á norðurlandi, en samt kalt og hvasst. Það mun frjósa í lykkjum í dag.
Veiði hefst í fjölmörgum ám í dag og nokkrum vötnum einnig. Við munum reyna að fylgjast með gangi mála og birta ykkur fréttir hér á vefnum, í dag og næstu daga.