Ytri Rangá kemur vel undan vetri. Á vorin er það bæði staðbundinn urriði og sjóbirtingur sem veiðimenn eru að setja í, í Ytri Rangá, ásamt bleikju. Jóhannes Hinriksson og félagar tóku fyrstu köstin í ánni þetta vorið og þeir urðu svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum.
Náðu þeir félagar bæði flottum urriðum og birtingum. Stærsti urriðinn var sannkallað Monster – 7,6 kg spikfeitur fiskur sem taldi sig vera kominn í feitt, þegar hann réðst á straumflugu sem Jóhannes kastaði fyrir hann. Magnaður fiskur sem veit á gott fyrir næstu daga, ekki síst þegar sannarlega fer að vora.

