Góður vorveiðikostur fyrir veiðihópa
Nú í vor verður boðið uppá veiði á Bíldsfellssvæðinu í Soginu í apríl og maí. Seld eru 2 daga holl en einnig stakir dagar. Stangardagurinn á kr. 10.000. Fjórar stangir seldar saman: 3 sem veiða Bíldsfellssvæðið og stöng nr 4 veiðir Torfastaðasvæðið.
Bíldsfells og Torfastaðasvæðin geyma mikið magn af bleikju en einnig hefur töluvert af vænum birtingi veiðst í Soginu undanfarin vor og haust.
Þegar holl eru bókuð, 2 eða fleiri dagar, þá bóka veiðimenn húsið með í pakkanum.
Vorveiðihollin í Bíldsfelli eru frábær kostur fyrir veiðihópana til að koma saman og starta nýju veiðitímabili. Góð aðstaða og góð veiðivon.