Nú eru einungis um 5 vikur þar til laxveiðitímabilið hefst með formlegum hætti. Margir spekúlantar spá góðu veiðisumri, sérstaklega hvað smálaxinn snertir. Eins og margir muna, þá byrjaði laxveiðin af krafti síðasta sumar. Þegar fyrstu veiðimenn mættu í árnar, þá tók mikið af laxi á móti þeim og virtust náttúrulegar aðstæður hafa leitt til þess að fyrstu göngurnar komu uppí árnar í fyrri stóra straumnum í júní, og jafnvel fyrr. Það verður forvitnilegt að sjá hvort sama verði uppá teningnum þetta árið.
Við viljum vekja athygli á nokkrum snemmsumars dögum í laxveiði, sem eru inni á veiða.is. Við miðum við miðjan júlí þegar við tölum um snemmsumars daga. Stórstreymi er í kringum 10. júní, 24. júní og síðan 9/10 júlí á þessu tímabili.
Gufuá – Það eru lausir dagar í byrjun júlí, 3-9. Verðið á stangardaginn er 30þ með aðgang að húsi.
Norðurá II – Það eru lausir dagar í Norðurá II í júní. M.a. í kringum báða stórstreymisdagana.
Hörðudalsá – Það eru laus 2 holl í kringum stórstreymið 10. júlí. Mjög áhugaverðir dagar.
Fossá – Veiði hefst í Fossá með formlegum hætti 15. júlí. Fyrstu dagar tímabilsins eru lausir. 20þ stangardagurinn. 2 stangir seldar saman.
Mýrarkvísl – Laxveiðin í Mýrarkvísl er oft að detta í gang í kringum 10-15. júlí. Það eru lausir dagar á því tímabili. Stangardagurinn á 35þ.
Hvolsá og Staðarhólsá – Það eru laus holl og stakar stangir í Hvolsá og Staðarhólsá fyrri hluta júlí. Áhugaverðir dagar. Við minnum einnig á að Hvolsá og Staðarhólsá eru frábær svæði fyrir vinahópa og fjölskyldur. Mjög gott veiðihús er á staðnum.
Ytri Rangá – Við gætum átt 1-2 stangir í endursölu í Ytri Rangá frá morgni 3. júli og fram að hádegi 6. júlí. Hafið samband ef þið hafið áhuga.
Eystri Rangá – Erum með 3 stangir í endursölu í Eystri Rangá, 21-24. júní. Stórstreymisdagar. Hafið samband ef þið hafið áhuga.