Veiðin hófst í Þjórsá með formlegum hætti í gær og strax fyrsta daginn komu fjölmargir laxar á land. Fossá rennur í Þjórsá uppí Þjórsárdal. Seldar eru 2 stangir á laxasvæði árinnar, frá 15. júlí. Verð veiðileyfa er hóflegt, frá 20-40.000 fyrir stangardaginn.  Þar sem laxinn er mættur nú þegar í Þjórsá, þá eru allar líkur á að hann mæti einnig snemma í Fossá í ár. Hérna má finna lausa daga og verð, í júlí, ágúst og September.

2 stangir eru seldar saman hvern dag og eru seldir heilir dagar, frá morgni til kvölds. Fluga er leyfilegt agn.