Nú eru veiðileyfi í Eystri Rangá komin inná veiða.is
Eystri Rangá er ein albesta laxveiðiá landsins með um 4.500 laxa meðalveiði síðustu 10 árin. Eystri Rangá er einnig þekkt stórlaxaá, en stór hluti veiddra laxa er lengri en 75cm. Veitt er á 18 stangir í Eystri Rangá á hefðbundnum veiðitíma, á 9 svæðum. Veiðimenn veiða 2 svæði á dag. Leyfilegt agn í Eystri Rangá, á hefðbundum veiðitíma, er fluga, maðkur og spúnn.
Hér á veiða.is má finna lausa daga í September í Eystri Rangá. Seldar eru 2 stangir saman í pakka og verðið sem sést á vefnum er verð fyrir 2 stangir. Ef óskað er eftir einni stöng, þá má hafa beint samband í gegnum [email protected]. Stangardagurinn í September er á kr. 25-40.000