Nú eru veiðileyfi Á Munaðarnessvæðið í Norðurá komin á vefinn hjá okkur en það svæði tilheyrir Norðurá II. Veiðisvæði Norðurá II er hreyfanlegt yfir tímabilið: Er neðst í ánni frá opnun og fram í byrjun júlí og er þá kallað Munaðarnessvæðið og er síðan efsti hluti Norðurár eftir það og er þá kallað Fjallið.

Munaðarnessvæðið nær frá Kálfhylsbrotinu að ofan verðu og niður að Engjanefi. Veitt er með að hámarki 3 stöngum á þessu svæði og eru þær seldar saman í pakka. Stangardagurinn er á kr. 18.700 – 29.300. Hérna má finna lausa daga á Munaðarnessvæðinu nú í júní.

Um daginn komu einnig inná vefinn laus holl í Norðurá II, Fjallið. Hérna má finna lausa daga þar.