Nú er veiðivertíðin þetta árið rúlluð af stað. Vetur konungur setti víða strik í reikninginn á fyrsta veiðidegi ársins sem var í gær, en hann kom þó ekki í veg fyrir frábæra sjóbirtingsveiði víða á suðurlandi. Sem dæmi um góða veiði á sjóbirtingsslóðum, þá komu um 100 fiskar á land í Tungulæk, rúmlega 70 fiskar í Tungufljóti og um 80 í Geirlandsá. Mjög langir fiskar sáust í bland við smærri, þeir lengstu yfir 90 cm langir. Nú er sá tími kominn að birtingurinn er að fikra sig til sjávar, þar sem hann mun fara að næra sig af krafti aftur og safna kröfum fyrir næstu heimsókn upp árnar. Við hvetjum alla til að meðhöndla fiskana af gætni og skila þeim ósködduðum aftur í ána.
Af öðrum ám er það m.a. að frétta að veiðimenn í Brunná áttu fínan dag í fær. Tvær stangir voru að veiðum og lönduðu hátt í 10 vænum fiskum. Veiðimenn í Varmá fundu fisk víða, en fyrst of fremst neðarlega í ánni eins og yfirleitt er. Ekki vitum við heildartölu fyrsta veiðidags í Varmá, en vafalaust komu yfir 30 fiskar á land.
Veiðimenn í Vatnamótunum voru rólegir í tíðinni, enda kalt og það fraus í lykkjum framan af. Fyrstu köstin voru tekin að ganga 11 og flestir veiðimenn voru hættir um kl. 17. Þessi ástundun skilaði þó 99 fiskum á land. Sá stærsti var um 85 cm langur og margir voru á bilinu 70-80 cm. Við eigum nokkra lausa daga í apríl í Vatnamótunum. Þá má sjá hérna.
Vatnaveiðin fór rólega af stað, eftir því sem okkur skilst – lítið um tökur en þó var góður hópur veiðimanna sem kíktu í vötnin í og við Reykjavík. Við minnum á að þeir sem skráðir eru á póstlista veiða.is, fá Veiðikortið á betra verði.
Við höldum áfram að tína saman fréttir, héðan og þaðan.
Mynd: Lárus Lúðvíksson með metfisk gærdagsins úr Tungufljóti, 91 cm, úr Syðri-Hólma.