Gljúfurá í Húnaþingi er laxveiðiá sem fellur í Hópið á milli Miðhóps og Hólabaks. Gljúfurá er dragá. Upprunalega laxasvæði hennar var fremur stutt en hefur á seinni árum verið lengt mikið með fiskvegagerð. Veitt er með 3 stöngum í Gljúfurá og er eina leyfilega agnið fluga. Verð veiðileyfa er mjög hóflegt á laxveiðitímanum, eða kr. 35.000 Stangardagurinn.
Bleikjuveiði í Gljúfurá er oft ævintýralega góð og er bleikjan yfirleitt mjög væn. Mest er bleikjuveiðin neðst í ánni, þar sem Gljúfurá rennur í Hópið.
Mjög gott veiðihús er við Gljúfurá. Með góðu móti geta 6 manns gist í húsinu. Uppábúin rúm bíða veiðimanna sem sækja Gljúfurá heim á laxatímanum.
Hér á vefnum má finna laus holl á laxveiðitímanum, sem hefst í lok júlí og stendur fram í September. Einnig bjóðum við uppá daga fyrr um sumarið, á bleikjutímanum. Veiðisvæðið er þá mun styttra og verð veiðileyfa annað. Hafið endilega samband fyrir frekari upplýsingar um veiðileyfi á bleikjutímanum.