Veiði hefst í Norðurá 4. júní. Yfirleitt fær aðalveiðisvæðið, Norðurá I, mestu athyglina en „hitt“ svæðið í Norðurá, Norðurá II skilar oft flottri veiði í júní. Norðurá II er fyrir neðan Norðurá I í júní og kallast Munaðarnessvæðið – Veitt er á 3 stangir á svæðinu. Flott verð er á dögum á Munaðarnessvæðinu en í júní er greitt fyrir 2 stangir en heimilt er að veiða á 3 stangir. Miðað við 3 stangir er stangardagurinn á kr. 18.700-29.300. Það er erfitt að finna laxveiðileyfi á betra verði.

Veitt er frá morgni til kvölds, heilir dagar – með hefðbundinni pásu frá 13-16.  Veiðisvæðið geymir 13 merkta veiðistaði, þar á meðal Kálfhylsbrotið, en veiðin þar er oft frábær í júní.

Við eigum núna einn lausan dag á Munaðarnessvæðinu, 25. júní. Sjá hér.