Hinn árlegi Hlíðarvatnsdagur í Selvogi er Sunnudaginn 10. júní. Þá býðst veiðimönnum að koma og veiða í vatninu, án endurgjalds. Veiðifélögin við vatnið taka vel á móti veiðimönnum og hvetjum við alla sem koma til veiða, að líta við í veiðhúsum félaganna til að fá góð ráð, Upplýsingar um bestu staðina, heitustu flugurnar eða til að ná sér í heitt kaffi – fulltrúar veiðifélaganna verða á staðanum.
Heimilt er að veiða frá morgni og fram til kl. 17