Þrátt fyrir fá daga á suðvestur horninu, þar sem hitinn hefur farið yfir °12 þá er veiðin að detta í gang víða. Þingvallavatn hefur verið að gefa frábærlega undanfarið, hlussu bleikjur að veiðast víða í þjóðgarðinum. Árnar á Suðurlandi hafa einnig verið að gefa vel, sbr myndina sem fylgir þessari frétt. Við minnum á að allir sem skráðir eru í veiðiklúbb veiða.is, fá Veiðikortið á betra verði.

Laxveiðin rúllar einnig vel af stað. Veiðin hófst í Norðurá og Blöndu í síðustu viku og hefur Veiðin verið fín. Fyrsti 20 pundarinn kom á land um helgina í Blöndu en það var Bjarki Már Jóhannsson, veiðimaður og gæt, sem landaði honum. Veiði hefst í fjölmörgum ám í næstu viku, þar á meðal Ytri Rangá og Elliðaánum. Lax sást í Djúpósnum í Ytri Rangá snemma í síðustu viku og undanfarna daga hefur töluvert sést af laxi neðst í Elliðaánum.

Við minnum á að við eigum nokkrar forfallastangir lausar í Ytri Rangá í Júlí.

Myndir

Nr. 1 – 20 pundari úr Blöndu, Veiðimaður: Bjarki Már Jóhanns

Nr. 2 – Jóhannes Hinriksson með flottan lax úr Blöndu

Nr. 3 – Bleikjur úr Þingvallavatni, Veiðimaður: Grétar Ingi

Nr. 4 – Bleikjar úr Þingvallavatni. Veiðimaður: Einar Hermannsson