Veiði hófst í Ytri Rangá í morgun, 20. júní. Veitt var á 10 stangir á fyrstu vaktinni. Strax í morgunsárið sáu menn fiska á Rangárflúðunum og einnig á Hellisey, en það þykir nokkuð snemma fyrir þessa staði. Yfirleitt er mest veiði fyrir neðan foss. Samtals komu 11 laxar á land í morgun, flestir í Djúpósnum og á Rangárflúðunum, allt 2ja ára fiskar. Stærsti laxinn var 100 langur og kom hann á land í Djúpós, á HKAsunray. Olaf Fure leigutaki Ytri Rangár veiddi laxinn. Næst stærsti lax morgunsins var 90 cm langur og tók hann sömu flugu.
Við fylgjumst spenntir með framhaldinu í Ytri Rangá. Hérna má finna Upplýsingar um forfallastangir í Ytri Rangá sem eru í sölu hérna á vefnum.