Veiðin í Norðurá hefur verið stígandi, nánast alveg frá fyrsta degi. Við höfum heyrt af fínum skotum inná milli og fréttum um að töluvert væri af fiski að ganga. Sem dæmi var einn veiðimaður niðri á Munaðarnessvæðinu þann 21. júní. Á nokkrum tímum náði hann 4 flottum löxum og smá mun fleiri. Við eigum einn dag lausan á Munaðarnessvæðinu, 26. júní – game day, hægt að horfa á leikinn í símanum.

Síðast holl í Norðurá I, 21-24. júní, gerði svo frábæra veiði. Hollið náði 79 löxum og missti einnig mikið af fiski. Lax er núna farinn að veiðast mjög ofarlega í ánni einnig.  Veit þetta á gott fyrir framhaldið. Vatnið í Norðurá er mjög gott þessa dagana, skiljanlega með alla þessa rigningu sem dynur á okkur – Við eigum svolítið laust á Fjallinu (Norðurá II) í lok júlí og í ágúst. Endilega kíkið á dagana hérna eða sendið okkur fyrirpurn á [email protected]

Mynd: Veiðimaður með lax af Munaðarnessvæðinu þann 21. júní.