Litla Þverá rennur í Þverá fyrir ofan veiðistað nr 32. Litla Þverá er veidd með 2 stöngum og er fluga eina leyfilega agnið. Heimilt er að halda eftir 1 laxi á dag, pr stöng. Ekkert veiðihús er við Litlu Þverá og eru stakir dagar seldir, Veitt frá morgni til kvölds með hefðbundinni pásu yfir miðjan daginn. Veiðitímabilið er stutt, en það hófst 25. ágúst nú í ár.

Þorgeir Ólafsson var í Litlu Þverá 1. September síðast liðinn, við annan mann. Hann landaði 4 fiskum yfir daginn. Fengu þeir fiskana í Urðarhyl og í Sandhólshyl. Mynd: Þorgeir Ólafsosn

Það eru lausir dagar hjá okkur núna í September. Stangardagurinn er á einungis kr. 22.000 og eru báðar stangir ætíð seldar saman í pakka, samtals á kr. 44.000.