Árbótarsvæðið í Laxá í Aðaldal er á austurbakka árinnar, á milli Nesveiða og Laxamýrarsvæða. Á hverju ári koma alvöru drekar á land á þessu svæði, enda Laxá í Aðaldal, „Big Laxa“, bæði þekkt fyrir sína eigin stærð en einnig stærð laxana sem veiðast í ánni. Hérna má finna veiðileyfin á Árbótarsvæðið.
Árbótarsvæðið geymir ekki bara stóra laxa, þegar kemur inní sumarið, heldur er svæðið einnig heimkynni fjölmargra urriða sem margir hverjir eru mjög stórir. Veiðimenn geta byrjað að egna fyrir urriðann, strax í Apríl.
Leyfðar eru 2 stangir á Árbótarsvæðinu og fluga er leyfilega agnið. Ekkert hús fylgir leyfunum en hægt er að leigja mjög gott hús sem er nánast á árbakkanum.