Það má segja að Sogið sé næstum í bakgarði höfuðborgarinnar, en rétt um 40 mínútur tekur að keyra úr bænum að ánni. Sogið er að sjálfsögðu þekkt laxveiðiá en geymir einnig mikið magn af vænni bleikju. Verð veiðileyfa er svo sannarlega stillt í hóf á veiðisvæðum Sogsins.

Í vorveiðinni, þá er gjarnan seldir stakir dagar, frá morgni til kvöld en þegar kemur inní laxatíminn þá eru seldir saman 1 -3 dagar í senn, frá hádegi til hádegi, eins og sagt er.

Sog Bíldsfell

Veiðisvæðið við Sog Bíldsfell er vesturbakki Sogsins frá útfallinu fyrir neðan Írafossstöðina og niður að Tunguánni þar sem veiði fyrir landi Torfastaða hefst. Veitt er með 3 stöngum á svæðinu og eru þær yfirleitt seldar allar saman. Seldir eru 1-3 dagar í senn. Gott veiðihús er í Bíldsfellinu.

Hérna má finna lausa daga á Bíldsfellssvæðið í Soginu.

Sog Alviðra  – 3 stangir á verði 2ja

Alviðrusvæðið er bæði á vesturbakka Sogsins og einnig á austurbakkanum, fyrir neðan brú við Þrastalund. Í sumar býðst veiðimönnum einstakt tækifæri, en þegar keypt eru leyfi á Alviðrusvæðið, þá er greitt fyrir 2 stangir en heimilt verður að veiða á 3 stangir. Fínasta veiðihús fylgir með þegar sumarveiði er bókuð. Í vorveiðinni, þá þarf að biðja sérstaklega um húsið.

Hérna má finna lausa daga á Alviðrusvæðið í Soginu.

Athugið, eingöngu er leyfð fluguveiði á Alviðru og Bíldsfellssvæðinu. Veiðimenn eru eindregið hvattir til að sleppa öllum laxi, til að styðja við uppbyggingarstarf í Soginu, en heimilt er að taka 1 lax undir 68 cm, kjósi menn að gera það.