Veiðin í Vatnamótunum byrjaði frábærlega þann 1. apríl en fyrstu 4 vaktirnar skiluðu 170 birtingum á land. Í framhaldi af þeirri frábæru byrjun, þá kom frostakafli sem gerði veiðina erfiða. Síðustu dagar hafa svo aftur verið mjög góðir. Á svæði Vatnamótana safnast mikið af fiski saman, á leiðinni niður vatnakerfið til sjávar. Fiskurinn staldrar oft við og því er veiðin í Vatnamótunum oft mjög góð, langt fram eftir maí mánuði.
Við eigum örfá holl laus nú í apríl og maí
5-7. maí
11-13. maí
Veitt er á 5 stangir í Vatnamótunum og eru þær seldar saman í pakka í flestum tilfellum. Í vorveiðinni er eingöngu veitt á flugu og skal sleppa öllum fiski.
Hérna er hægt að sjá fleiri upplýsingar um laus holl og verð.