Síðustu daga höfum við verið að vinna í uppfærslu og breytingum á sölukerfi veiðileyfa hér á veiða.is – markmiðið hefur verið að einfalda og gera það skilvirkara og fljótvirka. Í dag skiptum við því gamla út og tókum það nýja í notkun. Næstu dagar munu fara í að aðlaga og fínisera það sem vantar uppá. Við þessa breytingu þá breytast ýmsir linkar og tilvísanir sem hafa verið í gangi.

Ef ykkur vantar aðstoð við að bóka, eða ef þið sjáið eitthvað á vefnum sem þið teljið að ætti að vera öðruvísi, vinsamlega sendið okkur línu.

Við vonum að nýja útfærslan á sölunni verði okkur öllum heilladrjúg. Gleðilegt veiðisumar.