Samhliða því að breyta útfærslu og framsetningu sölu veiðileyfa á vefnum, þá tókum við í sölu 2 ný veiðisvæði. Annað þeirra er silungasvæði Ásgarðs í Soginu sem hefur aldeilis slegið í gegn síðustu vor. Síðara svæðið er silungasvæði Tungufljóts í Bláskógabyggð – svæði sem er þekkt fyrir stóra urriða.
Ásgarður í Soginu – Silungasvæði.
Ásgarðssvæðið geymir mikið af bleikju en einnig veiðist töluvert af urriða. Bleikjan væn í Soginu og 4-6 punda fiskar ekki óalgengir. Frá upphafi apríl og fram til 20 júní er svæðið veitt með 3 stöngum og er þær seldar stakar eða í pakka. Veiðisvæðið nær þá yfir allt Ásgarðssvæðið, bæði silungasvæðið og laxasvæðið. Frá 21. júní nær Silungasvæðið frá víkinni neðan gamla veiðihússins og að markagirðingu við Álftavatn. Fluga er eina leyfilega agnið. Frá 20. júní þá er seld 1 stöng inná silungasvæðið. Hérna má sjá lausa daga á Silungasvæðinu í Ásgarði í Soginu.
Tungufljót – Silungavæði
Silungasvæði Tungufljóts byrjar vel fyrir ofan fossinn Faxa, eða rétt ofan við ármót við Einholtslæk. Veiða má á flugu og spún á svæðinu. Svæðið er geysi víðfemt og nær yfir Tungufljót og hliðar ár þess, Laugá, Beiná og Almenningsá. Hægt er að gera fína veiði á þessu svæði og urriðinn getur verið mjög stór. Hérna er hægt að sjá lausa daga og verð.





