Veiði hófst í Hlíðarvatni við Selvog nú 1. maí. Flottar bleikjur hafa verið að veiðast og takan oft ágæt, þó veðrið hafi verið upp og ofan. Við heyrðum til að mynda frá veiðimönnum sem voru við veiðar í morgun, frá Árblik og Ármönnum.
Þeir vöknuðu upp í hálf hráslagalegu veðri – Slyddu rigningu, goluskít og hiti við °2C. Þeir höfðu s.s. ekki miklar væntingar til morgunsins, en þegar á reyndi, þá var bleikjan í fínu tökustuði. Eftir um 4 stunda veiði þá voru rúmlega 25 bleikjur komnar á land hjá 4 veiðimönnum. Flestar bleikjurnar fengu þeir á brúarbreiðunni en þar virtist vera mikið af bleikju. Tóku bleikjurnar hefbundnar hlíðarvatnspúpur – peacock, Krókinn, Langskegg og slíkar, í stærðum 14 og 16.
Hér að neðan er ein mynd sem Einar Falur sendi okkur frá morgninum.