Veiðileyfi í Skógá undir Eyjafjöllum, eru nú aftur komin í sölu hér á veiða.is. Seldar eru 4 stangir saman í pakka. Stangardagurinn frá kr. 15.000. Sjá nánar hérna.
Skógá undir Eyjafjöllum er 4ra stanga lax og silungsveiðiá. Svæðið sem veitt er á samanstendur af um 7 kílómetra kafla Skógár, 2km kafla Kvernu og 1,5 km kafla Dalsár. Svæðið er afar fjölskylduvænt og gott aðgengi er að hyljum. Árlega hefur um 30 þús laxaseiðum verið sleppt í ána.
Leyfilegt agn er fluga og maðkur. Seldir eru heilir dagar, frá morgni til kvölds. Hérna má sjá laus leyfi í Skógá.